Raggi BjarnaMinningarsíða1934 — 2020

Rödd sem
á heima
í hjörtum okkar

Við minnumst Ragga Bjarna

Söngvarans, gleðigjafans og mannsins á bak við lögin sem fylgja okkur enn.

Kynnstu sögunni
Raggi Bjarna brosir
Ragnar Bjarnason1934–2020
RöddinHlýjanGleðinOg öll þessi lög

FYRSTU KYNNI EÐA GÓÐIR ENDURFUNDIR

Kynnstu Ragga
á fimm lögum

Lítil hlustunarferð um ólíkar hliðar söngsins. Fimm lög valin úr safninu — til að byrja á eða hitta aftur.

Opna hlustunarferðina 5 lög · spilarar og söngtextar +

Vertu ekki að horfa svona alltaf á mig

Byrjum á sveiflunni — léttur söngur og fjör sem kallar fram dansgólfið.

Ragnar Bjarnason · Útgáfa: Vertu ekki að horfa – Afmælisútgáfa

Lag: James V. Monaco, Joseph McCarthy og Howard Johnson · Íslenskur texti: Jón Sigurðsson

Lesa söngtexta og höfundaupplýsingar ↗

Vorkvöld í Reykjavík

Næst gefum við okkur rólega stund með Reykjavík, kvöldinu og hlýjunni í röddinni.

Ragnar Bjarnason · Útgáfa: Vertu ekki að horfa – Afmælisútgáfa

Lag: Evert Taube · Íslenskur texti: Sigurður Þórarinsson

Lesa söngtexta og höfundaupplýsingar ↗

Komdu í kvöld

Kunnuglegt stef til að raula með og njóta einfaldlega stundarinnar.

Ragnar Bjarnason · Útgáfa: Vertu ekki að horfa – Afmælisútgáfa

Lag og texti: Jón Sigurðsson

Lesa söngtexta og höfundaupplýsingar ↗

Barn

Hér kynnumst við Ragga sem lagahöfundi, með ljóði Steins Steinarrs um æviskeiðin.

Ragnar Bjarnason · Útgáfa: Ragnar Bjarnason (1971)

Lag: Ragnar Bjarnason · Texti: Steinn Steinarr

Lesa söngtexta og höfundaupplýsingar ↗

Heyr mitt ljúfasta lag

Að lokum ljúfur söngur. Svo er hægt að halda áfram inn í hljóðsafnið og finna sitt eigið uppáhald.

Ragnar Bjarnason · Útgáfa: Heyr mitt ljúfasta lag

Lag: Cesare Andrea Bixio · Íslenskur texti: Skafti Sigþórsson

Lesa söngtexta og höfundaupplýsingar ↗
Áfram í hljóðsafnið

01 / ÆVIN OG FERILLINN

Allt byrjaði
á tónlistinni

Söguleg hljómsveitarmynd úr safni KK sextettsins
KK sextettinn

Frá trommusetti til hljóðnema. Frá dansleikjum til stórra tónleikasala. Tónlistin var samofin ævi Ragga.

Hann ólst upp við tónlist á heimili foreldra sinna, Bjarna Böðvarssonar hljómsveitarstjóra og Láru Magnúsdóttur söngkonu. Ferill hans hófst við trommusettið, en söngurinn átti eftir að verða hans aðalsmerki.

1954

Fyrstu plöturnar

Fyrstu plöturnar með söng Ragnars komu út hjá Tónika.

1956

Með KK sextettinum

Raggi varð söngvari KK sextettsins. Síðar söng hann aftur með hljómsveit Svavars Gests.

1965

Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar

Eigin hljómsveit varð til og lék á Hótel Sögu í nítján ár.

1972

Sumargleðin fer af stað

Raggi var meðal stofnenda Sumargleðinnar sem fór um landið og skemmti landsmönnum árum saman.

Seinni árin 1995–2019
1995

Gömul lög fá nýtt líf

Safnplatan Heyr mitt ljúfasta lag kom út með upptökum frá fyrri hluta ferilsins.

2007

Borgarlistamaður Reykjavíkur

Reykjavíkurborg heiðraði Ragnar með útnefningu sem borgarlistamann.

2012

Dúettar og ný kynni

Raggi söng með nýrri kynslóð flytjenda á Dúettum. Ári síðar kom Falleg hugsun út.

2019

Afmælistónleikar í Hörpu

Á 85 ára afmælistónleikunum kvaddi Raggi söngsviðið opinberlega.

Heimildir: Glatkistan og Reykjavíkurborg.

Hópur veifar fyrir neðan litla flugvél með áletruninni Ómar og Bessi
Sumargleðin

SUMARGLEÐIN · FRÁ 1972

Gleði á ferð
um landið

Dansleikir, skemmtanir og ferðalög. Sumargleðin fór um landið þvert og endilangt og Raggi var meðal þeirra sem komu henni á fót.

Þessi mynd úr safninu varðveitir augnablik frá þeim tíma þegar tónlistin og grínið fylgdu fólkinu milli staða.

Nánar um ævina og ferilinn Frá Lækjargötu til Hörpu

UPPVÖXTURINN

Tónlist á heimilinu

Ragnar ólst upp við Lækjargötu 12a í Reykjavík. Foreldrar hans voru Bjarni Böðvarsson hljómsveitarstjóri og Lára Magnúsdóttir söngkona. Lára söng meðal annars með Dómkirkjukórnum í marga áratugi.

Hann hóf ferilinn sem trommuleikari. Sextán ára söng hann með Sigurði Ólafssyni inn á lakkplötu; upptökurnar komu út á safndiski löngu síðar.

HLJÓMSVEITARÁRIN

Heima og erlendis

Eftir KK sextettinn söng Ragnar með hljómsveit Björns R. Einarssonar og síðan aftur með Svavari Gests. Hann flutti utan árið 1962 og sneri heim 1964, þegar samstarfið við Svavar tók við á ný.

Árið 1965 stofnaði hann eigin hljómsveit. Dansleikjaárin á Hótel Sögu og ferðir Sumargleðinnar urðu stór hluti af löngum ferli hans.

NÝJAR KYNSLÓÐIR

Samstarf og ný lög

Árið 2012 kom út Dúettar, þar sem Raggi söng með mörgum þekktum söngvurum. Ári síðar fylgdi Falleg hugsun með nýjum lögum. Jón Ólafsson vann báðar plöturnar með honum.

Á Happy hour með Ragga Bjarna frá 2017 söng hann með orgeltríói Karls O. Olgeirssonar.

VIÐURKENNING OG KVEÐJA

Ferill sem náði til margra

Ragnar var útnefndur borgarlistamaður Reykjavíkur árið 2007. Hann kvaddi söngsviðið opinberlega á 85 ára afmælistónleikum sínum í Hörpu haustið 2019 og lést í febrúar 2020.

Heimildir: Glatkistan og Reykjavíkurborg.

02 / TÓNLISTIN

Lögin lifa
Kynslóð eftir kynslóð

Gömul kynni og nýjar raddir.
Tónlist sem heldur áfram að tengja okkur.

Upprunalegt plötuumslag Heyr mitt ljúfasta lag
1995 · SAFNPLATA

Heyr mitt ljúfasta lag

Safn upptaka frá árunum 1960–1971. Þar má heyra lög frá fyrri hluta ferilsins.

Upprunalegt plötuumslag Vel sjóaður
2006 · SJÓMANNALÖG

Vel sjóaður

Sjómannalög í flutningi Ragga. Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson og Þórir Úlfarsson önnuðust upptökur.

Fleiri útgáfur úr safninu 8 umslög
Umslag: Við bjóðum góða nótt
1999Við bjóðum góða nóttRaggi syngur með hljómsveit Ástvalds Traustasonar. Platan er tileinkuð foreldrum hans.
Umslag: Gleðileg jól með Ragga Bjarna
2007Gleðileg jól með Ragga BjarnaJólaplata frá 2007, gefin út af RB hljómplötum.
Umslag: Komdu í kvöld
2009Komdu í kvöldÞreföld safnútgáfa með lögum frá löngum ferli.
Umslag: Lögin sem ekki mega gleymast
Lögin sem ekki mega gleymastFimmtán lög sem Raggi hafði sungið á ferlinum en ekki áður gefið út. Agnar Már stýrði upptökum og með honum syngja Ellen Kristjánsdóttir, Kristjana Stefánsdóttir, Jónsi og Bjarni Arason.
Umslag: Reykjavíkurljóð
ReykjavíkurljóðLag Gunnars Þórðarsonar við texta Ómars Ragnarssonar. Raggi syngur með söngkvartettinum Borgarbörnum og stórsveit Gunnars.
Umslag: Vertu ekki að horfa · Afmælisútgáfa
2004Vertu ekki að horfa · AfmælisútgáfaAfmælisútgáfa plötunnar sem kom fyrst út árið 2003.
Umslag: 75 ára afmælistónleikar
TÓNLEIKAR 200975 ára afmælistónleikarUpptaka frá afmælistónleikum Ragga með gestum.
Umslag: Með hangandi hendi
MYNDEFNIMeð hangandi hendiMeð hangandi hendi

Útgáfuupplýsingar: Glatkistan. Smelltu á umslag til að skoða það stærra.

Hlustaðu á lögin

FINNDU LAGIÐ ÞITT

Leitaðu
Hlustaðu

Í hljóðsafninu geturðu leitað að lagi eða útgáfu, spilað upptökur og opnað söngtexta þar sem þeir eru til.

Leita og hlusta
Skoða lagalista útgáfna 10 útgáfur

Hér eru upplýsingar um lög á útgáfunum. Upptökur af öllum lögunum eru ekki til í hljóðsafninu.

75 ára afmælistónleikar 19 færslur
  • Að byggja til þín brú
  • Blómarós frá Barcelona
  • Geislinn
  • Vor við sæinn
  • Sjómenn íslenskir erum við
  • Kokkur á kútter frá Sandi, Vertu sæl mey, Ship ohoj
  • Everybody Loves a Lover
  • Ljúfa vina
  • Óli Rokkari
  • Minningar
  • Nótt í Moskvu
  • Út í Hamborg
  • Svífðu með
  • Varir þegja
  • Barn
  • Vor við flóann
  • My Way
  • Flottur jakki
  • Við bjóðum góða nótt
Gleðileg jól með Ragga Bjarna 13 færslur
  • Bráðum koma blessuð jól
  • Ekki er neitt eins og jólin
  • Jólabæn
  • Mig dreymdi (að ég væri jólasveinn)
  • Fagni lýðir
  • Jólarökkur
  • Ave María
  • Senn koma jólin
  • Jólasveinar hlæja svo hátt
  • Engill á himni
  • Draumur á Jólanótt
  • Gleðileg jól
  • Við fáum alveg nóg
Heyr mitt ljúfasta lag 20 færslur
  • Komdu í kvöld
  • Heyr mitt ljúfasta lag
  • Ship-o-hoj
  • Limbó rokk
  • Stúlkan mín
  • Vorkvöld í Reykjavík
  • Lipurtá
  • Skvetta, falla, hossa og hrista
  • Vertu ekki að horfa svona alltaf á mig
  • Þarna fór ástin mín
  • Undir stórasteini
  • Vertu sæl mín kæra
  • Vina kom heim
  • Rock og cha cha cha
  • Kokkur á kútter frá Sandi
  • Stafróf ástarinnar
  • Ævintýri
  • Skipstjóravalsinn
  • Föðurbæn sjómannsins
  • Barn
Komdu í kvöld 70 færslur
  • Ljúfa vina
  • Buona Sera
  • Vor við flóann
  • Vertu ekki að horfa svona alltaf á mig
  • Komdu í kvöld
  • Rock og Cha cha cha
  • Ævintýri
  • Kokkur á kútter frá Sandi
  • Heyr mitt ljúfasta lag
  • Stafróf ástarinnar
  • Skvetta, falla, hossa og hrista
  • Stúlkan mín
  • Án þín
  • Undir stórasteini
  • Sjómenn íslenskir erum við
  • Þarna fór ástin mín
  • Barn
  • Kvöldkyrrð
  • En hvað með það?
  • Flottur jakki
  • Í fínu formi
  • Sumarauki
  • Kenndu mér að kyssa rétt
  • Komdu í kvöld
  • Mærin frá Mexíkó
  • Volare
  • Hún var með dimmblá augu, dökka lokka
  • Eins og fólk er flest
  • Nótt í Moskvu
  • Limbó rokk
  • Skipstjóravalsinn
  • Vertu sæl mey
  • Farmaður hugsar heim
  • Hvert er farið blómið blátt?
  • Lipurtá
  • Hafið lokkar og laðar
  • Megi dagur hver fegurð þér færa
  • Ástarsaga
  • Á ferðalagi
  • Síðasti vagninn í Sogamýri
  • Við bjóðum góða nótt
  • Fröken Reykjavík
  • Móðurást
  • Að byggja til þín brú
  • Suður um höfin
  • Barn
  • Átján rauðar rósir
  • Anna í Hlíð
  • Flökku Jói
  • Óli rokkari
  • Æ, ó, aumingja ég
  • Litla stúlkan mín
  • Komdu í kvöld
  • Vorkvöld í Reykjavík
  • Landafræði og ást
  • Ship-O-Hoj
  • Vertu sæl mín kæra
  • Ég man hverja stund
  • Föðurbæn sjómannsins
  • Þegar ég er þyrstur
  • Úti í Hamborg
  • Væru, kæru, tæru dagar sumars
  • Ég bið þig forláts
  • Í þá gömlu góðu daga
  • Smells Like Teen Spirit
  • Ó, blessuð vertu sumarsól
  • Fram í heiðanna ró
  • Tondeleyo
  • Ég býð þér koss mín kæra
  • Blómarós frá Barcelona
Lögin sem ekki mega gleymast 15 færslur
  • Manstu gamla daga
  • Fram í heiðanna ró
  • Kenndu mér að kyssa rétt
  • Átján rauðar rósir
  • Þá var alltaf allt að gerast
  • Á hörpunnar óma
  • Brúnaljósin brúnu
  • Haddería, haddera
  • Lífið er leikur
  • Í kjallaranum
  • Hvar er bruninn?
  • Tondeleyó
  • Ég er kominn heim
  • Æskuminning
  • Viltu með mér vaka í nótt
Með hangandi hendi 13 færslur
  • Í fínu formi
  • Undarlegt með unga menn
  • Ó blessuð vertu sumarsól (Sumarkveðja)
  • Að byggja til þín þrá
  • Til eru fræ
  • Þarna fer ástin mín
  • Tequila
  • Heyr mitt ljúfasta lag
  • Ég fer í fríið
  • Hver vill sigla?
  • Eiki bleiki
  • Með hangandi hendi
  • Megi dagur hver fegurð þér færa
Reykjavíkurljóð 1 færsla
  • Reykjavíkurljóð
Vel sjóaður 14 færslur
  • Sjómenn
  • Sumarauki (Gullfoss með glæstum brag)
  • Ég hvísla yfir hafið
  • Vertu sæl mey
  • Úti á sjó
  • Hvítu mávar
  • Suður um höfin
  • Sjómenn íslenskir erum við
  • Föðurbæn sjómannsins
  • Skvetta falla hossa og hrista
  • Ship-o-hoj
  • Háseta vantar á bát
  • Hafið lokkar og laðar
  • Sjómannavísa
Vertu ekki að horfa – Afmælisútgáfa 16 færslur
  • Hvað ertu að pæla
  • Nótt í Moskvu
  • Móðurást
  • Svífðu með
  • Heyr mína bæn
  • Flottur jakki
  • Treystu á mig
  • Komdu í kvöld
  • Capri Catarina
  • Barn
  • Úti í Hamborg
  • Vor við flóann
  • Vorkvöld í Reykjavík
  • Vertu ekki að horfa svona alltaf á mig
  • Ljúfa langa sumar
  • Við bjóðum góða nótt
Við bjóðum góða nótt 13 færslur
  • You make me feel so young
  • The more I see you
  • Young at heart
  • Sú sælutíð
  • By the time I get to Phoenix
  • Just one of those things
  • In the wee small hours of the morning
  • Love and marriage
  • All the way
  • Deed I do
  • When I fall in love
  • Við bjóðum góða nótt
  • The Christmas song

Byggt á varðveittri lagaskrá. Sama lag getur komið fyrir á fleiri en einni útgáfu eða í fleiri en einni upptöku.

TÓNLIST ÚR SAFNINU

Setjum
lag á fóninn

Sex lög úr safninu. Veldu lag og njóttu söngsins.

Umslag: Ragnar og Þuríður syngja lög Jónatans Ólafssonar

Óskir rætast

Ragnar Bjarnason og Þuríður Sigurðardóttir · 3:31

Ragnar og Þuríður syngja lög Jónatans Ólafssonar

Horfa á Ragga bjóða velkomin ↓

ÚR MYNDSAFNINU

Raggi býður
ykkur velkomin

Upptaka frá því Raggi Bjarna opnaði heimasíðu sína fyrst árið 2011.

Lengd: 1:05

Áfram í hljóðsafnið ↓

MYNDBANDASAFNIÐ

Raggi í góðum félagsskap

Dúettar, sjónvarpsbrot og samtöl. Sjáðu Ragga með Sölku Sól, Jóni Jónssyni, Karli Orgeltríói og fleiri samferðamönnum.

Skoða myndböndin

04 / ÚR HLJÓÐSAFNINU

Raggi opnar
heimasíðuna fyrst árið 2011

Viðtal við Ragga þegar hann opnaði fyrst heimasíðu sína í þættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni.

Lengd: um 8 mínútur

STÚDÍÓ PARADÍS · 19. NÓVEMBER 2019

Allar mínar götur

Raggi syngur lag og texta Halla Reynis til minningar um hann.

Myndband og útgáfa: Sigurður Sigurbjörnsson.

05 / MINNINGARNAR

Sumar raddir
þagna aldrei

Lög sem kalla fram stað, stund eða manneskju. Minning um dansleik, tónleika eða söng í útvarpinu. Raggi á sinn stað í ótal slíkum augnablikum.

Heyrum eitt lag í viðbót ↗
Raggi brosir breitt og faðmar félaga sinn
Gleðin í góðum félagsskap.

SAMFERÐAFÓLK MINNIST RAGGA

Litlar sögur af stórum manni

Einar Örn Magnússon

Langafi og vinur

Langafabarn Ragga segir frá fjölskyldulífinu og tengslunum á milli kynslóða.

Finna viðtalið í greinasafninu ↗Anna Lilja Þórisdóttir · Stundin / Heimildin · 7. mars 2020

Egill Helgason

Plata sem varð kær minning

Egill rifjar upp kynni sín af Ragga og gjöf sem lýsir hlýju hans.

Finna minninguna í greinasafninu ↗Egill Helgason · DV / Eyjan · 26. febrúar 2020

Bubbi Morthens

Rödd sem fylgdi ævinni

Minningar um fyrstu kynni af söngnum og vináttuna sem síðar myndaðist.

Finna minninguna í greinasafninu ↗Hringbraut · minningarorð Bubba · 26. febrúar 2020

„… við Raggi skemmtum okkur konunglega við gerð plötunnar.“

Jón Ólafsson Úr inngangi plötunnar Dúettar.

UM MINNINGARSÍÐUNA

Til að varðveita
röddina og sögurnar

Minningarsíða um Ragnar Bjarnason, Ragga Bjarna, 1934–2020.

Hér er safnað saman tónlist, ljósmyndum, myndskeiðum og frásögnum sem varpa ljósi á líf hans og störf. Markmiðið er að gera efnið aðgengilegt, varðveita minningarnar og kynna Ragga fyrir nýjum kynslóðum.

Hvaðan kemur efnið?

Grunnurinn er varðveitt safn með myndum, hljóðupptökum, myndskeiðum, söngtextum og úrklippum. Við bætast tenglar í fjölmiðla og opinber þáttasöfn.

Heimildir og höfundar

Höfundar og heimildir fylgja efni þar sem upplýsingar liggja fyrir. Réttindi frumverka eru hjá viðkomandi rétthöfum; tilvísun í heimild felur ekki í sér að efnið sé frjálst til endurnotkunar.

Safn í mótun

Ekki liggja enn fyrir ártöl, ljósmyndarar eða nöfn allra sem sjást á myndunum. Óstaðfestar upplýsingar eru merktar og safnið er ekki tæmandi skrá yfir feril Ragga.

MINNINGAR, MYNDIR OG ÁBENDINGAR

Áttu minningu um Ragga?

Þorgeir Ástvaldsson og Sigurður Sigurbjörnsson sjá um minningarsíðuna. Þeir taka við frásögnum, myndum og ábendingum sem geta auðgað safnið.

raggibjarna@raggibjarna.is

Hnapparnir opna tölvupóstforritið þitt. Vinsamlegast nefndu heimild og ljósmyndara þar sem það á við og taktu fram hvort birta megi efnið og nafn þitt. Innsent efni er yfirfarið af umsjónarmönnum áður en það birtist.