Raggi BjarnaMinningarsíða1934 — 2020

TEXTASAFNIÐ

Textarnir sem
við syngjum með

Kunnuglegt viðlag, lítil saga, ljúf minning.
42 söngtextar úr safni Ragga.

Setjum lag á fóninn ↗

„Heyr mitt ljúfasta lag“

Finndu texta og opnaðu til að lesa.

42 textar í safninu

Barn

Barn

Texti
Steinn Steinarr
Lag
Ragnar Bjarnason
Opna PDF PDF · 1 síða

Ég var lítið barn
og ég lék mér við ströndina.
Tveir dökkklæddir menn
gengu fram hjá
og heilsuðu:
Góðan dag, litla barn,
góðan dag!

Ég var lítið barn
og ég lék mér við ströndina.
Tvær ljóshærðar stúlkur
gengu fram hjá
og hvísluðu:
Komdu með, ungi maður,
komdu með!

Ég var lítið barn
og ég lék mér við ströndina.
Tvö hlæjandi börn
gengu fram hjá
og kölluðu:
Gott kvöld, gamli maður,
gott kvöld!

Heimild höfundaskráningar ↗

Textaheimild: varðveitt textablað úr safni Ragga Bjarna · Höfundar halda réttindum sínum

Everybody Loves A Lover

Everybody Loves A Lover

Texti
Richard Adler
Lag
Robert Allen
Opna PDF PDF · 1 síða

Everybody loves a lover
I'm a lover, everybody loves me
Anyhow, that's how I feel
Wow, I feel just like a Pollyanna

I should worry, not for nothin'
Everybody loves me, yes they do
And I love everybody
Since I fell in love with you

CHORUS
Who's the most popular personality?
I can't help thinkin' it's no one else but me
Gee, I feel just about ten feet tall, havin' a ball
Guess ya might call me a Pollyanna

Everybody loves a lover

I should worry, not for nothin'
Everybody loves me, yes they do
And I love everybody
Since I fell in love with
Fell in love with
Fell in love with youuuuuuuuuu

(Call me a Pollyanna, do)

Heimild höfundaskráningar ↗

Textaheimild: varðveitt textablað úr safni Ragga Bjarna · Höfundar halda réttindum sínum

Ég fer í fríið

Ég fer í fríið

Texti
Iðunn Steinsdóttir
Lag
Toto Cutugno
Opna PDF PDF · 1 síða

Ljósin á ströndu skína skær
Skipið það færist óðum nær
Og þessi sjóferð endi fær
Ég búinn er að puða og púla
Pokann að hífa og dekkin spúla.
Reifur ég stendi í stafni hér
Strax og að landi komið er
Bý ég mig upp og burt ég fer.

Ég fer í fríið, ég fer í fríið, ég fer í fríið
Ég fer í fríið, ég fer í fríið, ég fer í fríið.

Óþolinmæðin í mér býr
Áður en rennur dagur nýr
Skal ég mér eiga ævintýr.
Ég fer á ball og drekk og dansa,
Mér dembi út í stelpnafansa.
Hafgúuvæl og vinda gnótt
Voru mín tónlist hverja nótt
Nú skal það breytast býsna fljótt.

Ég fer í Fríið………………………..

Ljósin á ströndu skína skær
Skipið það færist nær og nær
Og mér í brjósti hugur hlær.
Allt sem ég þrái upp þau fylla
Og mína löngun magna og trylla.
Lengi ég beið og loksins er
Lagt þetta allt að fótum mér
Ég má þess njóta nú og hér.

Ég fer í fríið………………….

Heimild höfundaskráningar ↗

Textaheimild: varðveitt textablað úr safni Ragga Bjarna · Höfundar halda réttindum sínum

Ég vil fara upp í sveit

Ég vil fara upp í sveit

Texti
Jón Sigurðsson
Lag
Carasella
Opna PDF PDF · 2 síður

Ég vil fara upp í sveit
þar í sumar vil ég vinna
veit ég þar er margt að finna

Ég vil reyna eitthvað nýtt
því ég veit að allir elska kaupakonur
og í jeppa
oft mun skreppa
ýmislegt mun gerast þar um sumarkvöldin

Þó með einum
oft í leynum
ein ég fari það mig skaðað getur ekki neitt

Og mig dreymir oft um það
sem þar gerist þegar sólin
rennur síðla bak við fjöllin
því að sveitin er engri lík.

—

Um ljósa nótt við leiðumst okkar veg
við lækinn bak við ásinn þú og ég
og hvað þar verður hvíslað veit ei neinn
Nema læku-u-u-rinn einn
hann hlusta-a-a-ar einn

Ég vil fara upp í sveit
þar í sumar vil ég vinna
veit ég þar er margt að finna

Ég vil reyna eitthvað nýtt
því ég veit að allir elska kaupakonur
og í jeppa oft mun skreppa
ýmislegt mun gerast þar um sumarkvöldin

Þó með einum
oft í leynum
ein ég fari það mig skaðað getur ekki neitt

Og mig dreymir oft um það
sem þar gerist þegar sólin
rennur síðla bak við fjöllin
því að sveitin er engu öðru lík.

Upp til hei-eiða-a – inn til da-ala
liggja okkar tveggja spor.

Heimild höfundaskráningar ↗

Textaheimild: varðveitt textablað úr safni Ragga Bjarna · Höfundar halda réttindum sínum

Ferðalok (Ég er kominn heim)

Ferðalok (Ég er kominn heim)

Texti
Jón Sigurðsson
Lag
Emmerich Kálmán
Opna PDF PDF · 1 síða

Er völlur grær og vetur flýr
og vermir sólin grund.
Kem ég heim og hitti þig,
verð hjá þér alla stund.

Við byggjum saman bæ í sveit
sem blasir móti sól.
Þar ungu lífi landið mitt
mun ljá og vera skjól.

Sól slær silfri á voga,
sjáðu jökulinn loga.
Allt er bjart fyrir okkur tveim,
því ég er kominn heim.

Að ferðalokum finn ég þig
sem mér fagnar höndum tveim.
Ég er kominn heim,
já, ég er kominn heim.

Sól slær silfri á voga,
sjáðu jökulinn loga.
Allt er bjart fyrir okkur tveim,
því ég er kominn heim.

Heimild höfundaskráningar ↗

Textaheimild: varðveitt textablað úr safni Ragga Bjarna · Höfundar halda réttindum sínum

Fjórir kátir þrestir

Fjórir kátir þrestir

Texti
Jón Sigurðsson
Lag
Erlent lag — höfundur óstaðfestur
Opna PDF PDF · 1 síða

tra,la,la,la,la,la,la,la,la,la,la tra,la,la,la,la,la,la,la,la,la,la
Fjórir kátir þrestir sátu saman á kvist
vorljóðin sín sungu af lyst
báðu söng um ást og unað , yndi og ró
bú sitt í björtum skóg
Ef þú kemur hér þegar kvölda fer
muntu heyra þann sönginn sem ég ann

tra,la,la,la,la,la,la,la,la,la,la tra,la,la,la,la,la,la,la,la,la,la
fyrir þig kveða þeir vísurnar sínar vorkvöldin löng
tra,la,la, …….
harmarnir flýja ef hlustarðu á þeirra söng

Fjórir kátir þrestir sáu að sumarið leið
hægt færðist nær haustið sem leið
litlir ungar urðu fleygir
yndið var nóg , ljúft var í laufgum skóg
Ef þú kemur hér þegar kvölda fer
muntu heyra þann sönginn sem ég ann

tra,la, …………..
fyrir þig kveða þeir vísurnar sínar vorkvöldin löng
tra,la,la, …….
harmarnir flýja ef hlustarðu á þeirra söng
Fjórir kátir þrestir flugu suður um sjó
Hljóðnaði í haust bleikum skóg
En að vori aftur gista ættarlandið
ættarlandið, hugsa um hreiðrið sitt
Ef þú kemur hér þegar kvölda fer
muntu heyra þann sönginn sem ég ann

tra,la, …………..
fyrir þig kveða þeir vísurnar sínar vorkvöldin löng
tra,la,la, …….
harmarnir flýja ef hlustarðu á þeirra söng

Heimild höfundaskráningar ↗

Textaheimild: varðveitt textablað úr safni Ragga Bjarna · Höfundar halda réttindum sínum

Flottur jakki

Flottur jakki

Texti
Kristján Hreinsson
Lag
J. K. Thomas
Opna PDF PDF · 1 síða

Ég fékk eitt sinn jakka og ég fór í hann
og flestar stelpur þráðu heitt að hitta þennan mann.
Sem vildi bara hlusta á hið villta bít,
ég vildi bara jakka úr tvít, tvít, tvít.

Flottur jakki… (tvít, tvít, tvít)
Flottur jakki… (tvít, tvirilídí)
Ég átti lakkrísbindi
og skyrtan hún var skjannahvít.

Helst ég vildi alltaf hlusta á þetta bít,
ef heyrist þessi taktur út á gólfið ég þýt.
Í úrhelli eða sól
alltaf vil ég heyra rock ‘n ról.

Flottur jakki… (tvít, tvít, tvít)
Flottur jakki… (tvít, tvirilídí)
Ég átti lakkrísbindi
og skyrtan hún var skjannahvít.

Buxurnar hjá okkur voru þröngar þá,
og þá var jafnað skótauið með mjóa tá.
Með briljantín í hárinu ég steig á stokk
og stelpurnar þær vildu bara heyra rokk.

Heimild höfundaskráningar ↗

Textaheimild: varðveitt textablað úr safni Ragga Bjarna · Höfundar halda réttindum sínum

Fríða litla lipurtá

Fríða litla lipurtá

Texti
Jenni Jóns (Jens Jónsson)
Lag
Jenni Jóns (Jens Jónsson)
Opna PDF PDF · 1 síða

Fríða litla lipurtá,
ljúf með augun fögur djúp og blá
að dansa Jenka er draumurinn
hún dansar fyrir hann afa sinn.

Annað dansa ekki má
annað en Jenka, ónei það er frá.
allir klappa hó og hó og hæ
hlegið hátt og dansað dátt
og nú er kátt í bæ.

Fríða litla lipurtá
ljúf með augun fögur djúp og blá
að dansa Jenka er draumurinn
hún dansar fyrir hann afa sinn.

Heimild höfundaskráningar ↗

Textaheimild: varðveitt textablað úr safni Ragga Bjarna · Höfundar halda réttindum sínum

Heyr mitt ljúfasta lag

Heyr mitt ljúfasta lag

Texti
Skafti Sigþórsson
Lag
Cesare Andrea Bixio
Opna PDF PDF · 1 síða

Heyr mitt ljúfasta lag
er ég lék forðum daga
fyrir ljóshærða stúlku sem heillaði mig
þegar ungur ég var.

Það var sumar og sól
og við sátum í lundi,
ég var saklaus sem barn, en hún hló að mér samt
þegar hjarta mitt stundi.

Og þegar strengirnir túlka mitt litla ljóð,
þá leitar hugur minn ætíð á forna slóð,
þá var sumar og sól
og við sátum í lundi,
ég var saklaus sem barn, en hún hló að mér samt
þegar hjarta mitt stundi.

Heimild höfundaskráningar ↗

Textaheimild: varðveitt textablað úr safni Ragga Bjarna · Höfundar halda réttindum sínum

Heyr mína bæn

Heyr mína bæn

Texti
Ólafur Gaukur Þórhallsson
Lag
Mario Panzeri, Nicola Salerno og Gene Colonnello
Opna PDF PDF · 1 síða

Heyr mína bæn, mildasti blær.
Berðu kveðju mína’ yfir höf.
Syngdu honum saknaðarljóð.
Vanga hans blítt vermir þú sól
vörum mjúkum,
kysstu hans brá.
Ástarorð hvísla mér frá.

Syngið þið fuglar ykkar fegursta ljóðalag
flytjið honum í indælum óði ástarljóð mitt.

Heyr mína bæn, bára við strönd.
Blítt þú vaggar honum við barm,
þar til svefninn sígur á brá.
Draumheimi í dveljum við þá
daga langa saman tvö ein.
Heyr mína bænir og þrár.

Syngið þið fuglar ykkar fegursta ljóðalag
flytjið honum í indælum óði ástarljóð mitt.

Heyr mína bæn, bára við strönd.
Blítt þú vaggar honum við barm,
þar til svefninn sígur á brá.
Draumheimi í dveljum við þá
daga langa saman tvö ein.
Heyr mína bænir og þrár.

Heimild höfundaskráningar ↗ Viðbótarheimild ↗

Textaheimild: varðveitt textablað úr safni Ragga Bjarna · Höfundar halda réttindum sínum

Kenndu mér að kyssa rétt

Kenndu mér að kyssa rétt

Texti
Skafti Sigþórsson
Lag
Hendrik Konrad Rasmus
Opna PDF PDF · 1 síða

Kenndu mér að kyssa rétt
og hvernig á að faðma nett.
Hvernig á að brosa blítt
og blikka undur þýtt.
Ég, sem er svo ungur enn,
af ástarþránni kvelst og brenn,
tækifærin fæ ég ei
því flestar segja: Nei.

Og vona minna fagra fley
er flotið upp á sker.
Þú veist að gjörvöll gæfa mín
er geymd í hendi þér.

Kenndu mér að kyssa rétt
og hvernig á að faðma nett.
Þú færð í laun minn ástaryl
það er allt sem ég á til.

Heimild höfundaskráningar ↗

Textaheimild: varðveitt textablað úr safni Ragga Bjarna · Höfundar halda réttindum sínum

Kokkur á kútter frá Sandi

Kokkur á kútter frá Sandi

Texti
Reinhold Richter (Örnólfur í Vík)
Lag
Ólafur Gaukur Þórhallsson
Opna PDF PDF · 1 síða

Ég er kokkur á kútter frá Sandi.
Ég fæ kjaftshögg hvern einasta dag,
og ekki líður mér betur í landi
er ég lendi við konuna í slag.

Hún er tvígild að afli hún Tóta,
að ég tali' ekki um sé hún reið,
enda tek ég þá fljótast til fóta,
því flótti er mín einasta leið.

Ég var ungur er Tóta mig tældi,
okkar trúlofun samstundist birt.
Og í hjónaband þvínæst mér þvældi,
það var óveðursblandið og stirt.

Því þegar frá leið hljóp fjandinn í svínið
og er fædd voru ellefu börn
þá var búið með gaman og grínið,
þá var grátur mín einasta vörn.

Ef ég lifað fæ lengur en Tóta,
er hún leggur á eilífðarbraut
skal ég dansa og daganna njóta,
elda dýrindis rúsínugraut.

En mig hryllir ef hittumst við aftur
er ég héðan af jörðinni fer
nema' að einhver mér ókunnur kraftur
komi óðar og liðsinni mér.

Heimild höfundaskráningar ↗

Textaheimild: varðveitt textablað úr safni Ragga Bjarna · Höfundar halda réttindum sínum

Komdu í kvöld

Komdu í kvöld

Texti
Jón Sigurðsson
Lag
Jón Sigurðsson
Opna PDF PDF · 1 síða

Komdu í kvöld
út í kofann til mín,
þegar sólin er sest
og máninn skín.
Komdu hér ein,
því að kvöldið er hljótt,
og blómin öll sofa
sætt og rótt.
Við skulum vera hér heima
og vaka og dreyma.
Vefur nóttin örmum hlíð og dal.
Komdu í kvöld
út í kofann til mín,
þegar sólin er sest
og máninn skín.

Heimild höfundaskráningar ↗

Textaheimild: varðveitt textablað úr safni Ragga Bjarna · Höfundar halda réttindum sínum

Laus og liðugur (Sigurður er sjómaður)

Laus og liðugur (Sigurður er sjómaður)

Texti
Númi Þorbergsson
Lag
Jónatan Ólafsson
Opna PDF PDF · 1 síða

Sigurður er sjómaður
sannur vesturbæingur
alltaf fer hann upplagður
út að skemmta sér

Dansar hann við dömurnar
dásamaður allsstaðar
með ungar jafnt sem aldraðar
út á gólfið fer

Í vínarkrus og vals og ræl
hann vindur sér á tá og hæl
þolir hvorki vol né væl
vaskur maður er
Kátur syngur Sigurður
svona er að vera einhleypur
alltaf laus og liðugur
líkar þetta mér.

Heimild höfundaskráningar ↗

Textaheimild: varðveitt textablað úr safni Ragga Bjarna · Höfundar halda réttindum sínum

Ljúfa vina

Ljúfa vina

Texti
Ólafur Gaukur Þórhallsson og Indriði G. Þorsteinsson
Lag
Ólafur Gaukur Þórhallsson og Jón Sigurðsson
Opna PDF PDF · 1 síða

Hvert sem mig ber á braut, bárum hafs og landi á,
ég elska þig og þú elskar aðeins mig, engan nema mig
því ung varst þú ætluð mér, ísaköldu landi á.
Ég elska þig og ekki skal okkar höll verða reist á sandi.

Ung varst þú ætluð mér ísaköldu landi á.
Ég elska þig og ekki skal okkar höll verða reist á sandi.

Hvert sem mig bæri á brautu ég flyttist til þín á ný.
Læðumst svo lautu í, ljúfa vina af því
að ung varstu ætluð mér ísaköldu landi á.
Ég elska þig og ekki skal okkar höll verða á sandi reist.

Ólafur Gaukur Þórhallsson og

Heimild höfundaskráningar ↗

Textaheimild: varðveitt textablað úr safni Ragga Bjarna · Höfundar halda réttindum sínum

My Way

My Way

Texti
Paul Anka (enskur texti)
Lag
Claude François og Jacques Revaux

Frumtexti Comme d’habitude: Claude François og Gilles Thibaut.

Opna PDF PDF · 1 síða

And now, the end is near
and so I face the final curtain.
My friend, I'll say it clear
I'll state my case of which I'm certain.
I've lived a life that's full, I travelled each and every highway
And more, much more than this, I did it my way.

Regrets, I've had a few,
but then again too few to mention.
I did what I had to do
and saw it through, without exemption.
I planned each charted course each careful step, along the byway
And more, much more than this, I did it my way.

Yes there were times, I'm sure you knew,
When I bit off more than I could chew
But through it all, when there was doubt
I ate it up, and spit it out,
I faced it all, and I stood tall,
And did it my way.

I've loved, I've laughed and cried,
I've had my fill, my share of losing.
And now, as tears subside,
I find it all so amusing.
To think, I did all that, and may I say, "Not in a shy way",
Oh no no, oh no not me, I did it my way

For what is a man, what has he got,
If not himself, then he has not,
To say the things, he truly feels,
And not the words of one who kneels.
The record shows, I took the blows,
And did it my way.

Heimild höfundaskráningar ↗

Textaheimild: varðveitt textablað úr safni Ragga Bjarna · Höfundar halda réttindum sínum

Mærin frá Mexíkó

Mærin frá Mexíkó

Texti
Ólafur Gaukur Þórhallsson
Lag
Irving Burgess
Opna PDF PDF · 1 síða

Eitt sinn kom til mín yngismær
með augun blíð sem ljómuðu brún og skær.
Ég gerðist bráður og bað um hönd
og biddu fyrir þér, mér héldu engin bönd.

Ég var ungur þá og hýr á brá
en ekki féll henni við mig þó.
Hún kvaðst ei vilja væskilsgrey
og ég varð að skilja' hana eftir í Mexíkó.

Mætt hef ég síðan meyjafjöld
og margar buðu mér hjarta sitt auð og völd.
Að orðum þeirra ég aðeins hló,
mér efst í huga var mærin frá Mexíkó.

Ég var ungur þá og hýr á brá
en ekki féll henni við mig þó.
Hún kvaðst ei vilja væskilsgrey
og ég varð að skilja' hana eftir í Mexíkó.

Hvert sem fer ég um fjarlæg lönd,
hvert sem fleyið ber mig að sjávarströnd
Ætíð er lít ég í augun brún,
heitt ég óska að þarna stæði hún.

Því mín æskuást mun aldrei mást,
enga gleði mér lífið bjó,
þar til ég fer um fjarlæg ver
og færi hana burtu frá Mexíkó.

Heimild höfundaskráningar ↗

Textaheimild: varðveitt textablað úr safni Ragga Bjarna · Höfundar halda réttindum sínum

Nótt í Moskvu

Nótt í Moskvu

Texti
Jónas Árnason
Lag
Vasílíj Solovjov-Sedoj
Opna PDF PDF · 1 síða

Eitt sinn gekk ég einn yfir Rauðatorg
og mér fylgdi undarleg sorg.
Ég var ungur þá, haldinn ungri þrá.
Það var maíkvöld í Moskvuborg.

Seinna sat ég einn grænum garði í,
fuglar sungu dirrindidí.
Ég var ungur þá, haldinn ungri þrá.
Það var maíkvöld í Moskvubý.

Allt í einu ég unga stúlku sá,
sem þar stóð og starði mig á,
bak við rósarunn með sinn rósamunn.
Það var maíkvöld í Moskvu þá.

Heimild höfundaskráningar ↗

Textaheimild: varðveitt textablað úr safni Ragga Bjarna · Höfundar halda réttindum sínum

Óli rokkari

Óli rokkari

Texti
Jón Sigurðsson
Lag
Rosenberg og Wineman
Opna PDF PDF · 1 síða

Áður var svo friðsælt í sveit.
Engan stað á jörðu ég veit
yndislegri henni um vor,
aldrei dó þar nokkur úr hor.
Húfu bar þá hreppstjórinn
og hristi pottlu oddvitinn
með búfé á beit.
Upp í Brekku bjó hann Óli
undir brattri hlíð í skjóli.
Átti börn og buru og frú
áttatíu kindur og kú.
Lifði´ af því sem landið gaf
og flesta næstur fast hann svaf
sem frúin hans veit.
Óli fór á ball í bæinn
borgina sem er við sæinn
kvaddi með sér kerlu sína
kvíðafull þá var hún Stína.
Óli vildi ekki stansa
ólmur vildi bara dans
rúmbu og rokk.
Eftir þetta rokka alla tíð
Óli gamli og Stína ár og síð.
Krakkarnir og kýrnar kunna rokk.
Kátur galar haninn alltaf rokk.
Hreppstjórinn er húfulaus
og oddvitinn er ekki laus
við rúmbu og rokk.

Heimild höfundaskráningar ↗

Textaheimild: varðveitt textablað úr safni Ragga Bjarna · Höfundar halda réttindum sínum

Prins Póló

Prins Póló

Texti
Þorsteinn Eggertsson
Lag
F. Zander
Opna PDF PDF · 2 síður

Mitt líf er ekki beisið
og tilbreytingarleysið hrikalegt,
Ég sést ekki oft í landi
því ég er alltaf út á sjó.
Og ég er talsvert þrekinn stór
og saman rekinn glæsilegt
Þótt fæði mitt sé einfallt
gosdrykkir og prins pólo.

En þegar við í landi þykjumst vera í standi
Til að sletta klaufunum úr,
Þá fer ég og kaupi mér prins póló
Þá uppnefna menn mig í moll og dúr.

1 og 2 og Pins póló
það er meiri gæinn þessi Prins Póló
Hámar allan daginn í sig prins póló
Hvernig þolir maginn allt það prins pólo
mér er um og ó.

Á herðum er mér vandi
því ég er ómissandi hópnum í
Þeir kalla á mig ef þarf að
lemja einhvern leiðinda hró
Ég látinn er í friði sem
ísjaki út á miði í kurt og pí
Og ef að ég er blankur
gefa þeir mér prins póló.

En þegar við í landi þykjumst vera í standi
Til að sletta klaufunum úr,
Þá fer ég og kaupi mér prins póló
Þá uppnefna menn mig í moll og dúr.

1 og 2 og Pins póló
það er meiri gæinn þessi Prins Póló
Hámar allan daginn í sig prins póló
Hvernig þolir maginn allt það prins pólo
mér er um og ó.

Ef áhöfnin er saman því þá
er meira gaman alls staðar
Það þarf svo margt að reyna
þar til við förum á sjó.
Við leggjum okkur hart í
að koma okkur í partý og kvennafar
En mér er svo sem sama
ef ég fæ Prins Póló

Svo ná þeir sér í skvísur
sem líta út eins og hnísur
upplagðar í gleðskap og þjó
Ég fer og fæ mér prins póló
þá uppnefna þau mig í einum kór

1 og 2 og Pins póló
það er meiri gæinn þessi Prins Póló
Hámar allan daginn í sig prins póló
Hvernig þolir maginn allt það prins pólo
mér er um og ó.

Á sveitaball við fórum
og birgir vel við vorum hvað um það
Við innganginn stóð löggan
og var með nöldur og pex
Við komust allir inn en ég var handtekinn
og þeir leituðu að víni en fundu bara
súkkulaði húðað kex.

En þegar við í landi þykjumst vera í standi
Til að sletta klaufunum úr,
Þá fer ég og kaupi mér prins póló
Þá uppnefna menn mig í moll og dúr.

1 og 2 og Pins póló
það er meiri gæinn þessi Prins Póló
Hámar allan daginn í sig prins póló
Hvernig þolir maginn allt það prins pólo
mér er um og ó.

Heimild höfundaskráningar ↗

Textaheimild: varðveitt textablað úr safni Ragga Bjarna · Höfundar halda réttindum sínum

Rock og Cha cha cha

Rock og Cha cha cha

Texti
Jón Sigurðsson
Lag
Ragnar Bjarnason
Opna PDF PDF · 1 síða

Hann var ungur og átti heim' í bænum
alltaf var hann á ralli nótt og dag.
Hann var sendur í sveit í einum grænum
svo á hann kæmist lag.

Því þar bjó gamall bóndi sem að átti
nokkurt bú sem hann rak af mestu snilld.
Og með hörku hafði hann alltaf stjórnað
hjúum eftir vild.

Svo kappinn kom í mjólkurbílnum um kvöld í nóvember
og kvaðst hér kominn til að vera með kurt sem vera ber.

Og honum fannst þarna vera frekar dauflegt
sem furða ekki nokkur var.
Því alltaf hreint eitthvað þurfti að gera
og annast skepnurnar.
En bóndinn átti unga og káta dóttur
sem álitleg mjög og fögur var.
Hana langaði til að læra að dansa
svo létt og hann var þar.

Og á kvöldin þau fóru ein í fjósið
því að þá þurftu kýrnar tugguna.
Og í auðum bás þau æfðu að dansa
Rock og cha cha cha.

En karlinn komst að þessu öllu og kvaðst ei vilja það.
Það væri best að brátt hann færi á burt já nema hvað.

Og nú er hann svo aftur hingað kominn
og hún ein má nú hirða gripina.
Og hún aldrei oftar fær að dansa
Rock og cha cha cha.
Rock og cha cha cha
Roooock oooog chhhha chhhha cha.

Heimild höfundaskráningar ↗

Textaheimild: varðveitt textablað úr safni Ragga Bjarna · Höfundar halda réttindum sínum

Ship-o-hoj

Ship-o-hoj

Texti
Loftur Guðmundsson
Lag
Oddgeir Kristjánsson
Opna PDF PDF · 1 síða

Sjómannslíf, sjómannslíf,
draumur hins djarfa manns,
blikandi bárufans,
býður í trylltan dans.

Sjómannslíf, sjómannslíf,
ástir og ævintýr
fögnuð í faðmi býr
brimhljóð og veðragnýr.

Ship-o-hoj, ship-o-hoj
ferðbúið liggur fley.
Ship-o-hoj, ship-o-hoj
boðanna bíð ég ei.

Við stelpurnar segi ég
ástarljúf orð
einn, tveir, þrír kossar
svo stekk ég um borð.

Ship-o-hoj, ship-o-hoj
mig seiðir hin svala dröfn.
Ship-o-hoj, ship-o-hoj
og svo nýja í næstu höfn.

Heimild höfundaskráningar ↗

Textaheimild: varðveitt textablað úr safni Ragga Bjarna · Höfundar halda réttindum sínum

Sjómenn íslenskir erum við

Sjómenn íslenskir erum við

Texti
Jónas Árnason
Lag
Jón Múli Árnason
Opna PDF PDF · 2 síður

Hæ sjómenn Íslenskir erum við
Og björg að landi berum við
Og það sem gera skal gerum við
Og klárir erum í allt

Og síld úr djúpinu seiðum við
Og feikn af henni veiðum við
Og allri hýrunni eyðum við
Í fagrar flíkur og vín

Og þegar hlöðnum bát
Við aftur leggjum landi að
Það setur sjóðheit þrá
Í brjóstum okkar, allt af stað.

Og þó að þrá þessi hafin sé
Og tuktuð til og tamin sé
Og þó með lurki hún lamin sé
Hún alltaf leitar samt út

—— millispil ———–

Og öllum Siggum við unnum þá
Og Guggum já, og Gunnum já
Sem standa töfrandi tunnum hjá
Og salta síld upp á kraft.

Og þó þær þykist ei sjá okkur
Og vilji ‘ ekki líta á okkur
Á löpp þær langar að ná okkur
Sem ósköp eðlilegt er.

Og þegar búið er
Að syngja dansa og drekka nó
Við bjóðum dömunum
Að ganga eitthvað út með sjó

Og blóðið um okkur ört fer þá
Og nóttin blíð og björt er þá
Til gamans ýmislegt gjört er þá
:Sem engan varðar neitt um: x3

Heimild höfundaskráningar ↗

Textaheimild: varðveitt textablað úr safni Ragga Bjarna · Höfundar halda réttindum sínum

Skvetta falla hossa og hrista

Skvetta falla hossa og hrista

Texti
Valgeir Sigurðsson
Lag
Heinz Gietz
Opna PDF PDF · 1 síða

Þær syngja:
Skvetta falla hossa og hrista, skvetta falla hossa og hrista
skvetta falla hossa og hrista, hrista stög og borð.

Út úr höfninni bylgjan ber, með sér bátinn sem er undir fótum mér.
Og hann vaggar vært og rótt, hann mun vagga mér í nótt.
Og við síður gutlar sjór, bylgja sérhver smá og stór. Syngur alveg í einum kór.

Þær syngja:
Skvetta falla hossa og hrista, skvetta falla hossa og hrista
skvetta falla hossa og hrista, hrista stög og borð.

Út á hafið er haldið brátt, þó að hafið það sé hvorki slétt né blátt.
Út úr augum ekki sér, því að óðum dimma fer.
Allt í kring er saltur sjór, bylgja sérhver smá og stór.
Syngur alveg í einum kór.
Þær syngja:
Láta marra hvessa kvissa, kvæsa urra messann kyssa
Skvetta falla hossa og hrista, skvetta falla hossa og hrista
skvetta falla hossa og hrista, hrista stög og borð.

Þó að tómleiki magnist minn, ég er messinn hér um borð í fysta sinn.
Ég skal standa af mér allt, þó að andi móti kalt.
Þó að rjúki saltur sjór, bylgja sérhver smá og stór.
Syng ég alveg í einum kór.

Þær syngja:
Láta marra hvessa kvissa, kvæsa urra messann kyssa
Skvetta falla hossa og hrista, skvetta falla hossa og hrista
skvetta falla hossa og hrista, hrista stög og borð.

Heimild höfundaskráningar ↗

Textaheimild: varðveitt textablað úr safni Ragga Bjarna · Höfundar halda réttindum sínum

Smells Like Teen Spirit

Smells Like Teen Spirit

Texti
Kurt Cobain
Lag
Kurt Cobain, Krist Novoselic og Dave Grohl
Opna PDF PDF · 2 síður

Load up on guns
Bring your friends
Its fun to lose
And to pretend
Shes overboard
Myself assured
I know I know
A dirty word

Hello (x 16)

With the lights out its less dangerous
Here we are now
Entertain us
I feel stupid and contagious
Here we are now
Entertain us
A mulatto
An albino
A mosquito
My libido
Yea

Im worse at what I do best
And for this gift I feel blessed
Our little group has always been
And always will until the end

Hello (x 16)

With the lights out its less dangerous
Here we are now
Entertain us
I feel stupid and contagious
Here we are now
Entertain us
A mulatto
An albino
A mosquito
My libido
Yea

And I forget
Just what it takes
And yet I guess it makes me smile
I found it hard
Its hard to find
Oh well, whatever, nevermind

Hello (x 16)

With the lights out its less dangerous
Here we are now
Entertain us
I feel stupid and contagious
Here we are now
Entertain us
A mulatto
An albino
A mosquito
My libido
Yea

Heimild höfundaskráningar ↗

Textaheimild: varðveitt textablað úr safni Ragga Bjarna · Höfundar halda réttindum sínum

Söngur veiðimannsins (Fallerí)

Söngur veiðimannsins (Fallerí)

Texti
Gylfi Ægisson
Lag
Gylfi Ægisson
Opna PDF PDF · 1 síða

Nú held ég bara þessu hætti og haldi heim á leið, fallerí fallera
Hér er fátt um fína drætti, ég fyrir þessu kveið, fallerí fallera.
Ég held ég komi við hjá ömmu, hún kaffisopa gefur mér
og svolítið kannski saman við sem til frásagnar ekki er,
fallerí, fallera..fallerí falle ralleralera.

Já, amma hún er indæl mær, ég finn hjá henni frið, fallerí fallera.
Ég væri orðinn ellær ef hennar nyti´ ei við, fallerí fallera.
Kaffisopa, kleinuhringi og kökur henni fæ ég hjá
og kannski líka brjóstbirtu burtu hroll að ná,
fallerí, fallera..fallerí fallí ralliralliRa.

Heimild höfundaskráningar ↗

Textaheimild: varðveitt textablað úr safni Ragga Bjarna · Höfundar halda réttindum sínum

Stafróf ástarinnar

Stafróf ástarinnar

Texti
Loftur Guðmundsson
Lag
Buddy Kaye, Fred Wise og Sidney Lippman
Opna PDF PDF · 1 síða

Hún Gunna vildi ei neitt með Nonna hafa,
og Nonni var sá klaufi að Gunna hló.
Og því tók hann það ráð að reyna að stafa
á rósamáli það, sem innst í hugarfylgsnum bjó.

A merkir atlot þín
B merkir brosin þín,
D þú sért dásamlegt fljóð.
E elsku eldinn þinn,
F fagra faðminn þinn,
G þinna gullnu lokka flóð
H merkir hlátraþrá,
Í ljósa íturbrá,
J merkir jáyrðin hljóð.
K merkir kossabál,
L ljúfustu leyndarmál,
M merkir mey, sem er góð.
N, O, P, Q
Þú engin er sem þú.

R, S, T, Ú,
Engin skilur stafrófið sem þú.
V merkir von og heit,
X það sem enginn veit,
Y, Z, Þ, Æ og Ö
Það myndi létta lund,
ef læsum stund og stund
allt starfófið saman, við tvö.

Heimild höfundaskráningar ↗

Textaheimild: varðveitt textablað úr safni Ragga Bjarna · Höfundar halda réttindum sínum

Stúlkan mín

Stúlkan mín

Texti
Jónas Árnason
Lag
Jón Múli Árnason
Opna PDF PDF · 1 síða

Stúlkan mín er mætust
meyja og kvenna.
Sveinar ástaraugum
á eftir henni renna.
Og þeir allir saman
á öndinni standa
yfir því hvert afbragð
hún er til munns og handa.
Dável samansett hún er,
silkimjúk og nett hún er.
Lipur grönn og létt hún er,
laus við svik og pretti' hún er.
Kátur kvölds og morgna
kyssi ég hana.
Mig hún einnig ætíð
mun elska' af gömlum vana.

Heimild höfundaskráningar ↗

Textaheimild: varðveitt textablað úr safni Ragga Bjarna · Höfundar halda réttindum sínum

Sveitaball

Sveitaball

Texti
Ómar Ragnarsson
Lag
Daves (skráð þannig í heimild)
Opna PDF PDF · 1 síða

Sveitaball, já, ekkert jafnast á við sveitaball,
þar sem ægir saman alls kyns lýð
í erg og gríð að kela kátt hver á sinn hátt.
Þar eru ungmeyjar
og allt upp í uppskoprnaðar gamlar kerlingar.
Já, þar er úrval mest og menn sér skemmta best,
ef það er ekta sveitaball.

Sveitaball, það er í orðsins merking sveitaball.
Í hrundahamstri maður svitnar þar
og hitnar þar af átökum að reyna að ná tökum
á einhverri.
Með skörpum augum menn þar skima lon og don
í sveita andlits við að leita að andliti,
sem gefur góða von.

Sveitaball, öll kvennagullin elska sveitaball.
Því næði geft þeim til að gramsa þar
og kjamsa þar – á kjömmunum jafnvel á ömmunum.
Og öll þau ó-
hljóð úti á hlaði mynda hrærigrautarglaum
er breimkattarbrölt blandast við vélarskrölt,
rokklög og stapp og kjaftakraum.

Sveitaball, já, allir töffar elska sveitaball
Á bílum glanna þeir úr borginni
og bokkunni þeir hampa hátt. Sinn mikla mátt
þeir sýna meyjunnum
og slást og slarka og sláni margur síðast skreið.
Svo draujað dauðum heim svo dáldið sjatni í þeim
því annars yrði mamma reið –
og "karlinn" alveg "knall". Þá yrði engin leið –
að fá að skreppa á skrall á skæslegt sveitaball.

Heimild höfundaskráningar ↗

Textaheimild: varðveitt textablað úr safni Ragga Bjarna · Höfundar halda réttindum sínum

Svífðu með

Svífðu með

Texti
Kristján Hreinsson
Lag
Pablo Beltrán Ruiz og Luis Demetrio
Opna PDF PDF · 1 síða

Þegar fegurð þína fæ ég séð
flýg af stað svífðu með,
Ég vil lofa þetta líf með þér
ljúfan dans – svíf með þér.

Og með allt sem hefur áður skeð
ég er hér – svífðu með,
Eins og fögur ský sem fljúga hjá
förum viðum loftin blá.

Þegar tónlistin tryllir mitt geð
tek ég flugið og þú kemur með,
Þöndum vængjum með þér burt ég svíf
þetta ’er yndislegt líf.

Þegar sólin snertir blómabeð
bið ég þig – svífðu með,
Eins og dægurflugur dönsum við
dönsum nú hlið við hlið.

Heimild höfundaskráningar ↗

Textaheimild: varðveitt textablað úr safni Ragga Bjarna · Höfundar halda réttindum sínum

Undir Stórasteini

Undir Stórasteini

Texti
Jónas Árnason
Lag
Jón Múli Árnason
Opna PDF PDF · 1 síða

Það var eitt sinn ógnar lítið stelpuhró
sem fór oft með mér fram að sjó.
Hún var klædd í ullarpeysu oná tær,
með freknótt nef og fléttur tvær.

Saman tvö í fjörunni við undum okkur vel
meðan kollan var að kafa eftir kuðungi og skel.
Og á kvöldin þegar sólin sigin var
sátum við í næði, bæði, undir Stórasteini,
þar sem hún, í leyni, lagði vanga sinn
ósköp feimin upp við vanga minn.

Síðan hef ég konur séð í Cairó,
í Mandalay, í Mexíkó.
Líka þær sem kyrrahafið kafa í
og eiga heima á Hawaii.
Sumar klæddust hálmi þegar þeim var heitt
en aðrar bara klæddust ekki yfirleitt í neitt.

Alltaf samt í huga mér og hjarta bjó
hún sem klæddist ullarpeysu undir Stórasteini.
Forðum tíð, í leyni, lagði vanga sinn
ósköp feimin upp við vanga minn.

Heimild höfundaskráningar ↗

Textaheimild: varðveitt textablað úr safni Ragga Bjarna · Höfundar halda réttindum sínum

Úti í Hamborg

Úti í Hamborg

Texti
Jón Sigurðsson
Lag
Jón Sigurðsson
Opna PDF PDF · 2 síður

Manstu kvöldin okkar út í Hamborg,
og ævintýrin mörgu út í Hamborg
Þar gerðist ýmislegt sem einginn veit um
og aldrei skulum neinum segja frá

Þú eltir allar stelpur út í Hamborg
o, ho ekki varstu betri út í Hamborg
Er lagleg hnáta leyndist þar á kvöldin,
já lífið var sem dans á rósum þá.

Við dönsuðum og sungum þar til dagur risinn var
og kreistum fast og kysstum allar kátustu stelpurnar.

Já, ég vild’ ég væri ennþá út í Hamborg
ég ennþá er með hugann út í Hamborg
En kjaftaður bara ekki upp úr svefni
því enginn okkar syndir vita má.

Ljótt var er þú lentir inn í steininn
o, þeir lokuðu mig þar inn árast beinin.
Hvern fjárann varstu að fara inn um gluggann
ha, nú, ég fór að hitta kvenmann svei mér þá

En því gast’ ekki gengið inn um dyrnar
o, sú gamla var sem hundur, bál og þyrnar.
En dóttirin var dásamleg það sver ég
og dúnmjúk hvar sem tók ég henni á.

Já en löggan sá á eftir mér og óðar komin var
mér ekkert þýddi að segja, því þeir skyldu mig ekki þar

Já, ég vild’ ég væri ennþá út í Hamborg
ég ennþá er með hugann út í Hamborg
En kjaftaður bara ekki upp úr svefni
því enginn okkar syndir vita má.

En þegar þú varst eftir varð ég hissa
já, – mér orðið hefur á mörg verri skyssa.
Því betri nætur enginn Íslendingur
sér átti nokkurn tím’ í þýskri höfn

Ég skil ekki ég skyldi koma aftur
o, ja, sko þú varst orðinn bölvaður fylleraftur
En segðu mér, með hverri varst’ að (uss hættu)
ég held sko kjafti núna um öll nöfn

Mér fannst það hlyti að vera eitthvað undarlegt við það
nú ef þú ert með stæla, skal ég spæla þig í spað. (O, svona).

Ég vild’ ég væri ennþá út í Hamborg
ég ennþá er með hugann út í Hamborg
Já en kjaftaður bara ekki upp úr svefni
því enginn okkar syndir vita má,
því enginn okkar syndir vita má.

(„Nei, sérðu þessa, mikið gasalega er hún hugguleg“
„ég á eftir henni“, „nhei, góði, ég sá hana fyrst“.)

Heimild höfundaskráningar ↗

Textaheimild: varðveitt textablað úr safni Ragga Bjarna · Höfundar halda réttindum sínum

Varir þegja

Varir þegja

Texti
Karl Ísfeld / Egill Bjarnason
Lag
Franz Lehár

Íslensk þýðing úr óperettunni Kátu ekkjunni; þýðendur samkvæmt tónleikaskrá.

Opna PDF PDF · 1 síða

Varir þegja.
Vildu segja:
Unn þú mér.
Fiðlur hljóma,
Enduróma:
Ann ég þér.
Handtak hlýtt mér tjáir
Heitt þú elskir mig.
Eitt er víst, já, eitt er víst:
Ég elska þig!
Í valsinn fegin flýg
Og frjáls hvert spor ég stíg,
Svo létt af lífi og sál,
Svo spyr, svo spyr mitt hjartans mál:
Ertu minn? Já ertu minn?
Þá endurómar: Ég er þinn
Og elska þig, já þig,
Ég elska þig.
Handtak hlýtt mér tjáir
Heitt þú elskir mig.
Eitt er víst, já, eitt er víst:
Ég elska þig!

Heimild höfundaskráningar ↗

Textaheimild: varðveitt textablað úr safni Ragga Bjarna · Höfundar halda réttindum sínum

Vertu ekki að horfa svona alltaf á mig

Vertu ekki að horfa svona alltaf á mig

Texti
Jón Sigurðsson
Lag
James V. Monaco, Joseph McCarthy og Howard Johnson
Opna PDF PDF · 1 síða

Vertu ekki að horfa svona alltaf á mig
ef þú meinar ekki neitt með því.
Ef lagleg mey mig lítur á,
ég litið get ekki upp og roðna alveg niður í tá.
Og ef ég verð í einni skotinn
ég aldrei þori að segja nokkurt orð.
En leynda ósk, ég ætla að segja þér.
Að þú viljir reyna að kenna mér.
Því ertu að horfa svona alltaf á mig.
Ef þú meinar ekki neitt með því.

Heimild höfundaskráningar ↗

Textaheimild: varðveitt textablað úr safni Ragga Bjarna · Höfundar halda réttindum sínum

Vertu sæl mey

Vertu sæl mey

Texti
Loftur Guðmundsson
Lag
Ástgeir Ólafsson (Ási í Bæ)
Opna PDF PDF · 1 síða

Við brimsorfna kletta bárurnar skvetta
hvítfextum öldum á húmdökkum kvöldum
sjómanninn laða og seiða.
Skipstjórar kalla, skipanir gjalla,
vélarnar emja, æpa og lemja.
á haf skal nú haldið til veiða.

Vertu sæl mey.
Ég kem aftur er kvöldar á ný.
Gleym þú þú mér ei,
þó að báran sér bylti með gný.
Eigirðu yl handa sjómanni er sjöstjarnan skín,
þá stendur hann brosandi í stórsjó og byl
við sinn stjórnvöl og hugsar til þín.

Heimild höfundaskráningar ↗

Textaheimild: varðveitt textablað úr safni Ragga Bjarna · Höfundar halda réttindum sínum

Við bjóðum góða nótt

Við bjóðum góða nótt

Texti
Ágúst Böðvarsson
Lag
Bjarni Böðvarsson
Opna PDF PDF · 1 síða

Við bjóðum góða nótt
Á meðan húmið þig hjúpar hljótt
Lát söngsins ljúf mál
Strengja stál stilla sál
Lát söngsins enduróm
Yrkja í hjartanu fögur blóm
Það skapar lífinu léttan dóm

Nú hljóðnar harpan mín
Hún til þín kveðju ber
En brátt með fjör á ný
Fögnum því finnumst við hér.
Á meðan húmið hljótt
Breiðir sinn faðm yfir frjálsa drótt
Við bjóðum öllum, öllum góða nótt.

Heimild höfundaskráningar ↗

Textaheimild: varðveitt textablað úr safni Ragga Bjarna · Höfundar halda réttindum sínum

Við höldum hátíð í dag

Við höldum hátíð í dag

Texti
Ómar Ragnarsson
Lag
Ómar Ragnarsson
Opna PDF PDF · 1 síða

Við höldum hátíð í dag
Í himnaskapi við erum
Gott úr öllu við gerum
Saman syngjum hér lag.

Við höldum hátíð í dag
Í himnaskapi við erum
Gott úr öllu við gerum
Saman syngjum hér lag.

Höfundaupplýsingar staðfestar af umsjónarmanni síðunnar

Textaheimild: varðveitt textablað úr safni Ragga Bjarna · Höfundar halda réttindum sínum

Vor við flóann

Vor við flóann

Texti
Jón Sigurðsson
Lag
Leon René
Opna PDF PDF · 1 síða

Senn fer vorið á vængjum yfir flóann,
vaknar allt af vetrarblund, um völl og hlíð.
Blómin spretta úr jörð og litla lóan
ljóðar glatt og leikur dátt sín lögin blíð.
Um hin kyrru ljúfu kvöld
er hvíslað létt í skóg
hin ástarljúfu orð
er angar döggin á grein.
Senn fer vorið á vængjum yfir flóann,
vaknar allt af vetrarblund, um völl og hlíð.

Heimild höfundaskráningar ↗

Textaheimild: varðveitt textablað úr safni Ragga Bjarna · Höfundar halda réttindum sínum

Vor við sæinn (Bjartar vonir vakna)

Vor við sæinn (Bjartar vonir vakna)

Texti
Árni úr Eyjum
Lag
Oddgeir Kristjánsson
Opna PDF PDF · 1 síða

Bjartar vonir vakna
í vorsins ljúfa blæ.
Bjarmar fyrir björgum,
við bláan sæ.
Fagur fuglasöngur
nú fyllir loftin blá,
brjóstin ungu bifast
af blíðri þrá.

Í æðum ólgar blóð
í aftansólarglóð,
ég heyri mildan hörpuslátt.
Ég heyri huldumál,
er heillar mína sál,
við hafið svalt og safírblátt.

Komdu vina kæra,
ó, komdu út með sjó.
Bylgjur klettinn kyssa,
í kvöldsins ró.
Viltu með mér vaka,
þú veist ég elska þig,
Komdu vina kæra
og kysstu mig.

Heimild höfundaskráningar ↗

Textaheimild: varðveitt textablað úr safni Ragga Bjarna · Höfundar halda réttindum sínum

Vorkvöld í Reykjavík

Vorkvöld í Reykjavík

Texti
Sigurður Þórarinsson
Lag
Evert Taube
Opna PDF PDF · 1 síða

Svífur yfir Esjunni sólroðið ský,
sindra vesturgluggar, sem brenni í húsunum.
Viðmjúk strýkur vangana vorgolan hlý,
vaknar ástarþráin í brjóstum á ný.
Kysst á miðju stræti er kona ung og heit,
keyra rúntinn piltar, sem eru í stelpuleit,
Akrafjall og Skarðsheiði eins og fjólubláir draumar.
Ekkert er fegurra en vorkvöld í Reykjavík.

Tjörnin liggur kyrrsæl í kvöldsólarglóð
kríurnar þótt nöldri og bjástri í hólmanum.
Hjúfra sig á bekkjunum halir og fljóð,
hlustar skáldið Jónas á þrastanna ljóð.
Dulin bjarkarlimi á dúnsins mjúku sæng
dottar andamóðir með höfuð undir væng.
Akrafjall og Skarðsheiði eins og fjólubláir draumar.
Ekkert er fegurra en vorkvöld í Reykjavík.

Hljótt er kringum Ingólf og tæmt þar hvert tár
tryggir hvíla rónar hjá galtómum bokkunum.
Svefninn er þeim hóglega siginn á brár,
sunnanblær fer mildur um vanga og hár.
Ilmur er úr grasi og angan moldu frá,
aftansólin purpura roðar vestursjá.
Akrafjall og Skarðsheiði eins og fjólubláir draumar.
Ekkert er fegurra en vorkvöld í Reykjavík.

Heimild höfundaskráningar ↗

Textaheimild: varðveitt textablað úr safni Ragga Bjarna · Höfundar halda réttindum sínum

Æskuminning

Æskuminning

Texti
Jenni Jóns (Jens Jónsson)
Lag
Ágúst Pétursson
Opna PDF PDF · 1 síða

Ó, manstu gamlar æskuástar stundir,
svo yndislegt var þá að vera til,
litla kofann, blómabrekku undir,
bunulækinn upp við hamragil.
Um sumarkvöld við sátum þar og undum
um sólarlag í blíðum sunnanþey,
og litla blómið fagra er við fundum,
í fjóluhvammi, það var gleym-mér-ey.

Manstu litlu lömbin út við stekkinn,
litla rjóðrið fagra upp við hól;
fuglinn litla er sætast söng á kvöldin,
silungshylinn fram við kvíaból.
Ánni í dalnum ei við munum gleyma,
oft við hlýddum blítt á hennar nið.
Allt var best og okkur kærast heima,
unaðslegt í dalsins kyrrð og frið.

Heimild höfundaskráningar ↗

Textaheimild: varðveitt textablað úr safni Ragga Bjarna · Höfundar halda réttindum sínum

Ævintýri

Ævintýri

Texti
Pálmar Ólason
Lag
Virgilio Panzuti
Opna PDF PDF · 1 síða

Meyja, nú ævintýr skal ég þér segja,
Um þig.
Forlögin þér vilja gæfu og yndi gefa
Grát þinn mun sefa, hlustaðu á
Sem heillastjörnur þínar segja frá.

Við þína hlið sjórinn sefur.
Þig sólskinið örmum vefur.
Í eyrum þér hlý golan kveðuröll sín
Kvæði
Og kaldurnorðanstormur lætur þig í
Næði.

Ef máninn skin milli skýja
Skimar til þín, vill þér hlýja.
Þú getur nótt sem dag um ferðast
Alltaf ein,
Þér enginn virðist vilja gera mein.

Söngfuglar vorsins fljúga beint til þín,
Þeir flytja þér öll beztu ljóðin sín.
Regndropar leika sér við lokka þína.
Lífsins gæfa ey dvín.

Við þína hlið sjórinn sefur
Þig sólskinið örmum vefur.
En þannig ævintýrið góðan endi fær
Ef eiga vildir þú mig fagra mær.

Heimild höfundaskráningar ↗

Textaheimild: varðveitt textablað úr safni Ragga Bjarna · Höfundar halda réttindum sínum

42 ólíkir söngtextar úr varðveittum textablöðum. Texta- og lagahöfundar fylgja hverjum texta, ásamt heimild höfundaskráningar. Þú getur prentað textann eða opnað hann sem PDF. Höfundar halda réttindum sínum.